Gæðahljóðfæri

Ísólfur Pálmarsson hljóðfæraumboð sf. hefur umboð fyrir píanó og flygla af tegundunum Grotrian – Steinweg, Sauter og Steingraeber & Söhne, allt úrvals hljóðfæri smíðuð í Þýskalandi að öllu leyti.

Einnig bjóðum við kirkjuorgel frá Kisselbach og sembala og spinet frá J.C. Neupert, svo og selló og kontrabassa frá Emanuel Wilfer.

Öll þessi hljóðfæri eru smíðuð í Þýskalandi. Ennfremur tökum við að okkur viðgerðir og stillingar á píanóum og flyglum hverrar gerðar sem er svo og ráðgjöf við kaup á notuðum hljóðfærum. Ísólfur Pálmarsson píanósmiður er félagi í Europiano, Sambandi evrópskra píanósmiða og píanóframleiðenda.