Ísólfur Pálmarsson hljóðfæraumboð sf. er stofnað árið 1984 og hefur eins og nafnið bendir til þann tilgang að útvega viðskiptavinum sínum hljóðfæri.
Auk þess að útvega hljóðfærin veitir fyrirtækið þjónustu á sviði píanóviðgerða og stillinga, bæði, bæði á Reykjavíkursvæðinu og víðar um land eins og t.d. á Suðurnesjum, Suðurlandi, á Eyjafjarðarsvæði, Húsavík og nágrenni, Kópaskeri og nágrenni og víðar.
Píanósmiður starfar hjá fyrirtækinu, Ísólfur Pálmarsson og er hann jafnframt meðlimur í Europiano, en það eru samtök evrópskra píanóframleiðenda og píanósmiða. Þess má geta að Europiano gerir miklar kröfur til meðlima sinna um fagmennsku Ísólfur lærði sína iðn fyrst hjá föður sínum Pálmari Ísólfssyni, píanó- og orgelsmið og lauk síðan námi hjá Grotrian – Steinweg píanóverksmiðjunni í Braunschweig í Þýskalandi.